Jarðboranir


Gæða-, öryggis- og umhverfismál

Jarðboranir eru með vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðastaðlinum ISO 9001, og voru Jarðboranir þar með fyrsta verktakafyrirtæki landsins til að fá umrædda vottun. Vottunin tekur til allrar þjónustustarfsemi fyrirtækisins hér á landi, allt frá skipulagningu og stjórnun til borframkvæmda.

Vistvæn orka verður stöðugt eftirsóttari og athygli beinist mjög að öflun jarðhita sem umhverfisvæns orkugjafa. Sem forystufyrirtæki á þessu sviði hafa Jarðboranir mikinn metnað í umhverfismálum og leggja ríka áherslu á að starfsemi fyrirtækisins sé í sem bestri sátt við náttúru og samfélag. Jarðboranir fengu umhverfisvottun á starfsemi sína haustið 2010 skv. umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001, en sá staðall tekur til stefnumótunar, markmiðssetningar, framkvæmda og eftirlits allra þeirra umhverfisþátta sem viðkomandi fyrirtæki getur stýrt eða haft áhrif á.

Öryggismál eru mjög mikilvæg hjá Jarðborunum enda starfsemi sem fylgir nokkur áhætta. Ekkert er mikilvægara en að starfsmenn komist heilir frá vinnu. Í hverju verki er öryggi haft í fyrirrúmi í samvinnu við verkkaupa hverju sinni.  Jarðboranir fengu vottun samkvæmt öryggisstjórnunarstaðlinum OHSAS 18001 haustið 2010.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli