Um Jarðboranir
Jarðboranir annast framkvæmdir á alþjóðlegum vettvangi og felst starfsemin einkum í nýtingu auðlinda í jörð og gerð mannvirkja. Jarðboranir leggja áherslu á að njóta alþjóðlegrar viðurkenningar sem sérfræðingar á sínu sviði og efla stöðu sína sem áhugaverður fjárfestingarkostur. Samstæða Jarðborana hf. samanstendur auk móðurfélagsins af Jarðborunum innanlands, Iceland Drilling Azores Unipessoal Lda. og Hekla Energy GmbH.