Jarðboranir


Frétt

19.10.2012
Jarðboranir skrifa undir nýjan borsamning á Montserrat

Undirritaður var nýr borsamningur á eyjunni Montserrat síðastliðinn miðvikudag. Það voru Vilhjálmur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Jarðborunum og Philip Chambers, ráðuneytisstjóri á Montserrat, sem undirrituðu samninginn.  Montserrat er lítil eyja í karabíska hafinu, ekki langt frá Antíga. Um er að ræða verksamning vegna borunar á tveimur borholum ásamt því að útvega efni í þær.

Að sögn Vilhjálms, þá var það bandarískt fyrirtæki EGS, sem gerði jarðfræðirannsóknir á eyjunni, og var það þeirra mat að um 80% líkur væri á því að hægt væri að finna jarðhita á eyjunni.  Holurnar verða boraðar ekki langt frá Soufriere eldfjallinu og borginni Plymouth sem for í eyði í kjölfar eldgoss fyrir um , 15 árum síðan, eða nánar tiltekið á milli Weekes Village and Garibaldi Hill.

Ráðgert er að hefja verkið í byrjun janúar 2013 og verður borinn Sleipnir notaður til verksins.  Sleipnir lauk fyrr á árinu við 3ja holu verkefni á eyjunni Dominica sem tókst mjög vel.  Verður borinn fluttur þaðan fljótlega.  Gert er ráð fyrir að verkefnið taki 3-4 mánuði, en áætlað er að bora 2000 metra holur. 

Að sögn Ron Beardsley verkefnisstjóra á Montserrat þá er eyjan algerlega háð því að flytja inn olíu til raforkuframleiðslu, en þeir eyða um 340 milljónum árlega í kaup á olíu.

Jarðboranir eru í dag með tvo bora í verkefnum erlendis á Nýja Sjálandi, og hafa nýverið lokið við borverkefni á Azoreyjum og í Danmörku.

 

Vilhjálmur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Jarðborunum og Philip Chambers, ráðuneytisstjóri á Montserrat, undirrituðu samninginn.


Til baka
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli