Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Jarðborana;
„Ég hlakka til að takast á við þetta spennandi verkefni. Fyrst og fremst verður mitt verkefni að leiða uppbyggingu á erlendri starfsemi félagsins og leita að og tryggja okkur þar verkefni. Eftirspurn eftir þjónustu félagsins hér heima hefur dregist mikið saman frá árinu 2008. Hjá Jarðborunum starfar mikið af hæfu og öflugu fólki með mikla og eftirsóknarverða sérhæfingu. Mitt hlutverk er að finna verkefni og tryggja að þessi sérhæfing skili félaginu tekjum og fólkinu okkar vinnu.“
Jarðboranir hf eru leiðandi aðili á heimsvísu í borun eftir jarðhita. Félagið er sem stendur með verkefni á Íslandi, Karabíska hafinu og Nýja-Sjálandi . Hjá Jarðborunum starfa um 140 manns.