Þriðjudaginn 25. september undirrituðu Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf. og Ágúst Torfi Haukssson, forstjóri Jarðborana, samning um borun á tveimur holum á Reykjanesi með möguleika á borun þeirrar þriðju ásamt viðgerð á einni holu.
Samningurinn var gerður að undangenginni verðkönnun á verkefninu af hálfu HS Orku hf. Borun á þessum holum er til að tryggja núverandi rekstur orkuversins með nauðsynlegu varaafli og um leið til að leggja drög að orkuöflun fyrir stækkun orkuversins.
Jarðboranir munu flytja til landsins frá Danmörku Bentec bor sinn sem er stærsti bor sem hér hefur borað með 350 tonna lyftigetu. Borinn er að því leyti sérstakur að hann verður knúinn með raforku frá orkuverinu í stað hefðbundinna dieselvéla. Borinn mun koma til landsins eftir u.þ.b. mánuð en reiknað er með að borverkið hefjist um miðjan nóvember.
Ágúst Torfi Hauksson forstjóri Jarðborana og Júlíus Jónsson forstjóri HS Orku undirrita samninginn.
Aftari röð frá hægri: Þór Gíslason forstöðumaður tæknisviðs HS Orku, Albert Albertsson aðstoðarforstjóri HS Orku, Garðar Sigujónsson verkefnastjóri Jarðborana og Sturla Fanndal Birkisson framkvæmdastjóri tæknisvið Jarðborana.