Jarðboranir


Frétt

05.07.2010
Jarðboranir tóku þátt í jarðhitaráðstefnu og sýningu á BALI

Stærsti viðburðurinn á sviði jarðhita sem stóð yfir í 7 daga, ráðstefna og sýning “World Geothermal Congress” var haldin dagana 25.-30 apríl 2010.  Að þessu sinni var hún haldin á eyjunni BALI í Indónesíu, en ráðstefnan sem er aðeins haldin á fimm ára fresti er talinn vera sú  mikilvægasta á þessu sviði. 

Þetta er í þriðja sinn sem Jarðboranir taka þátt í þessari sýningu sem var á West In Hotelinu á Nua Beach.  Yfirskrift eða þema ráðstefnunnar var “Geothermal: The Energy to Change the World”.

 

Alls voru þátttakendur um 2.500 manns sem komu víðs vegar að úr heiminum, eða frá alls 85 löndum.  Þetta var vettvangur nýjustu rannsókna og þróunar síðustu ára, auk þess að umræða fór fram um framþróun þessa mikilvæga málaflokks á tímum þar sem þörf er á byltingu í noktun endurnýjanlegra orkugjafa.

Það voru forsetar Íslands og Indónesíu, auk iðnaðarráðherra landins sem opnuðu ráðstefnuna.  Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór yfir mikilvægi jarðhitans á Íslandi og þá miklu reynslu sem Íslendingar eru færir um að deila með öðrum þjóðum.

Sýningin er mikilvægur þáttur í þessari ráðstefnu, þó svo hún sé ekki mjög stór.  Sjö íslensk fyrirtæki tóku sig saman og og kynntu þjónustu sýna á veglegum þjóðarbás sem Útflutningsráð Íslands (nú Íslandsstofa) tók að sér að skipuleggja fyrir hönd fyrirtækjanna.  Þess má geta að 3 aðrar þjóðir buðu upp á þjóðarbása sem voru Þýskaland, Ástralía og Holland. 

Við getum ekki verið annað en ánægðir með hvernig til tókst, að sögn Vilhjálms Guðmundssonar hjá Jarðborunum.  Básinn vakti mikla athygli og fjöldi gesta heimsótti okkur í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi okkar. Sú staðreynd að við erum með lang mestu reynsluna í jarðhitaborunum og með nýjasta borflotann var næg ástæða til að vekja athygli þeirra sem eru að huga að borunum eftir jarðhita.

Að fimm árum liðnum árið 2015 verður næsta ráðstefnan haldin í Ástralíu, nánar tiltekið í borginni Melbourne, (Melbourne Convention & Exhibition Centre, MCEC). 

Þá munu Ástralir og Ný Sjálendingar skipuleggja ráðstefnuna í sameiningu.


Til baka
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli