Aðalsíða
Jarðboranir eru stærsta fyrirtæki í heimi sem sérhæfir sig í öflun jarðhita. Sterkur heimamarkaður, áratuga reynsla af verkefnum erlendis, framúrskarandi starfsfólk og hátæknivæddur borfloti gera fyrirtækið samkeppnishæft hvar sem er í heiminum.
Því er spáð að mannkyni fjölgi ört á næstu áratugum og að spurn eftir vistvænni orku aukist hratt. Þar verðum við Íslendingar í lykilstöðu með sérþekkingu okkar á öflun og beislun jarðvarma. Þannig verða þau verðmæti, sem Jarðboranir og dótturfyrirtækin erlendis afla úr iðrum jarðar, enn sem fyrr undirstaða framfara og lífsgæða.
Fréttir
16.08.2010
Íslendingar í stjórn Alþjóðajarðhitasambandsins - IGA
Rafrænar kosningar til stjórnar Alþjóðajarðhitasambandsins fóru fram í sumar. Þrír Íslendingar voru í kjöri og allir fengu þeir margfalt atkvæðavægi Íslands og náðu allir kjöri til setu í 30 manna stjórn félagsins næstu þrjú árin.
Nánar

20.10.2008
Jarðboranir undirrita sinn stærsta samning um jarðhitaboranir á Azoreyjum
Iceland Drilling (UK) Ltd, dótturfélag Jarðborana, hefur undirritað samning við orkufyrirtækin Sogeo og GeoTerceira á Azoreyjum um borun á rannsóknar- og vinnsluholum háhitasvæðum á eyjunum og verður orkan nýtt til raforkuframleiðslu. Samningurinn er sá langstærsti sinnar tegundar sem gerður hefur verið á þessum slóðum. Um er að ræða tvö tengd verkefni fyrir þarlend orkufyrirtæki, Sogeo og Geoterceira. Verkefnin eru unnin á eyjunum São Miguel og Terceira. Verðmæti samningsins er allt að 1,8 milljarðar og er fyrirhugað að nýta orkuna á eyjunum mestmegnis til raforkuframleiðslu