Jarðboranir




 

 

Aðalsíða

Jarðboranir eru stærsta fyrirtæki í heimi sem sérhæfir sig í öflun jarðhita. Sterkur heimamarkaður, áratuga reynsla af verkefnum erlendis, framúrskarandi starfsfólk og hátæknivæddur borfloti gera fyrirtækið samkeppnishæft hvar sem er í heiminum.

Því er spáð að mannkyni fjölgi ört á næstu áratugum og að spurn eftir vistvænni orku aukist hratt. Þar verðum við Íslendingar í lykilstöðu með sérþekkingu okkar á öflun og beislun jarðvarma. Þannig verða þau verðmæti, sem Jarðboranir og dótturfyrirtækin erlendis afla úr iðrum jarðar, enn sem fyrr undirstaða framfara og lífsgæða.

 

Fréttir

14.01.2012
SF III undirritar samning um kaup á 82% hlut í Jarðborunum hf. af Miðengi ehf.
SF III slhf., félag í rekstri Stefnis hf., hefur gert samning um kaup á 82% eignarhlut í Jarðborunum hf. af Miðengi ehf., dótturfélagi Íslandsbanka. Eigendur SF III eru Festa lífeyrissjóður, Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Samherji hf. og Stefnir Íslenski Athafnasjóðurinn I. Miðengi ehf. mun áfram fara með 18% eignarhlut í félaginu. Kaupsamningurinn sem nú hefur verið undirritaður er háður skilyrðum um tiltekin atriði, þ.á.m. samþykki Samkeppniseftirlitsins. Miðengi ehf. hóf opið söluferli á félaginu í ágúst 2011 sem fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með. Söluferlið var auglýst í fjölmiðlum og bárust fjölmörg tilboð í félagið frá innlendum jafnt sem erlendum fjárfestum. Í kjölfarið voru teknar upp viðræður við hæstbjóðanda sem lauk með umræddri sölu. Bent Einarsson, forstjóri Jarðborana „Við erum ánægð með aðkomu nýrra meirihlutaeigenda Jarðborana, stefnu þeirra og framtíðarsýn. Áfram verður byggt á þeim grunni sem fyrir er innan félagsins og höfuðstöðvarnar verða áfram á Íslandi. Traust og öflugt eignarhald er mikilvæg forsenda frekari velgengni Jarðborana. Þar horfum við ekki síst til vaxandi umsvifa félagsins á erlendum mörkuðum og þeirra tækifæra sem felast í aukinni áherslu á vistvæna orkugjafa víða um heim. Um Jarðboranir Jarðboranir sérhæfir sig í öflun jarðhita. Áratuga reynsla af borunum eftir jarðhita á Íslandi hefur skapað félaginu mikilvæga reynslu til að bjóða þjónustu sína erlendis. Félagið stendur að borframkvæmdum víða erlendis s.s. í Danmörku, Nýja Sjálandi, Þýskalandi, Karabíska hafinu og á Azoreyjum. Um Stefni hf. Stefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með yfir 300 milljarða króna í virkri stýringu. Félagið rekur innlenda og alþjóðlega sjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta auk þess að stýra félögum utan um framtaksfjárfestingar.
Nánar

09.06.2011
Jarðboranir semja um stórt verkefni við jarðhitaöflun á Nýja-Sjálandi
Jarðboranir hafa samið við eitt stærsta orkufyrirtæki Nýja-Sjálands, Mighty River Power, um framkvæmdir þar í landi. Samningurinn, sem er að verðmæti um 3 milljarðar króna, verður undirritaður síðar í mánuðinum. Verkefnið felst í borunum eftir jarðhita á svonefndu Ngatamariki jarðhitasvæði sem er um 17 km norðaustur af stöðuvatninu Taupo, um miðbik nyrðri eyju Nýja-Sjálands. Jarðhitinn verður nýttur til raforkuframleiðslu í nýju orkuveri á svæðinu sem verður í upphafi 82 MW og síðar stækkað í áföngum. Samningurinn er að lágmarki til tveggja ára og verður Týr, sem er stærsti bor landsins, fluttur yfir hálfan hnöttinn til verkefnisins. Gert er ráð fyrir að á fjórða tug sérfræðinga Jarðborana fari utan til að vinna við framkvæmdirnar og undirbúning þeirra.
Nánar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli